Reiðskóli Íshesta og Sörla

Reiðskóli Íshesta og Sörla býður upp á skemmtileg reiðnámskeið í sumar.

Okkar markmið er að börnin kynnist íslenska hestinum, læri undirstöðuatriðin í reiðmennsku og hafi gaman af.

Á námskeiðunum hjá okkur er aðeins einn nemandi um hvern hest. Við leggjum áherslu á mikið samneyti við hestana og erum dugleg að fara í reiðtúra þegar veður leyfir. Í reiðskólanum okkar er engin bókleg kennsla en verkleg kennsla fer fram í gegnum leik og starf með hestunum. Nemendur fá viðurkenningarskjal með mynd af sér og hestinum sínum í lok námskeiðs. Foreldrum er boðið að koma á sýningu síðasta kennsludaginn síðustu 40 mínúturnar. Nánar auglýst á hverju námskeiði fyrir sig.

 

Yfirumsjón með námskeiðum sumarsins hefur Margrét Gunnarsdóttir sem er kennaramenntuð og yfirmaður í hesthúsi Íshesta. Hún hefur séð um námskeiðin undanfarin tíu ár.

Námskeiðin eru 3 klukkustundir í senn í eina viku eða 5 daga. Börnin þurfa að koma klædd eftir veðri, í góðum skóm og með hollt nesti.

Skráning fer fram í gegnum Sportabler hér  Fyrirspurnir sendist á tölvupóstfangið á info@ishestar.is

 

Sumardagskrá 2023

 

7-12 ára fyrir hádegi
Reiðskóli 1    12.-16. júní    09:00-12:00      27.900 kr. FULL BÓKAÐ
Reiðskóli 2    19.-23. júní     09:00-12:00      27.900 kr. FULL BÓKAÐ
Reiðskóli 3    26. -30. júní     09:00-12:00      27.900 kr.
FULL BÓKAÐ
Reiðskóli 5    3.-7. júlí          09:00-12:00      27.900 kr. FULL BÓKAÐ
Reiðskóli 7    10.-14. júlí          09:00-12:00       27.900 kr. FULL BÓKAÐ
Reiðskóli 9    17.-21. júlí          09:00-12:00      27.900 kr. FULL BÓKAÐ
Reiðskóli 11   24.-28. júlí          09:00-12:00      27.900 kr. FULL BÓKAÐ

Athugið að skilyrði er að börn hafi klárað fyrsta bekk í grunnskóla.
*Einungis starfræktur ef næg þátttaka fæst sem er 10 skráningar. 

 

8-13 ára eftir hádegi
Reiðskóli 4    26. -30. júní     13:00-16:00      27.900 kr. FULL BÓKAÐ
Reiðskóli 6    3.-7. júlí          13:00-16:00     27.900 kr. FULL BÓKAÐ
Reiðskóli 8    10.-14. júlí          13:00-16:00      27.900 kr. FULL BÓKAÐ
Reiðskóli 10    17.-21. júlí          13:00-16:00     27.900 kr. FULL BÓKAÐ
Reiðskóli 12   24.-28. júlí          13:00-16:00     27.900 kr. FULL BÓKAÐ

 

Hestafjör 1 – 2 vikna námskeið fyrir 11-16 ára
Hestafjör er fyrir börn og unglinga sem hafa lokið öllum hefðbundnum námskeiðum og eru tilbúin í meira krefjandi reiðmennsku.

Hestafjör 1    12. júní-23. júní    13:00-16:00      64.900 kr. FULL BÓKAÐ

 

Innifalið: Þægir og góðir reiðhestar, öryggishjálmur og reiðtygi.