Reiðskóli Íshesta og Sörla 2025

Reiðskóli Íshesta og Sörla býður upp á skemmtileg reiðnámskeið í sumar.

Okkar markmið er að börnin kynnist íslenska hestinum, læri undirstöðuatriðin í reiðmennsku og hafi gaman af.

 

Hestur í fóstur reiðnámskeið Íshesta

 

Á námskeiðunum hjá okkur er aðeins einn nemandi um hvern hest. Við leggjum áherslu á mikið samneyti við hestana og erum dugleg að fara í skemmtilega reiðtúra. Í reiðskólanum okkar er engin bókleg kennsla en verkleg kennsla fer fram í gegnum leik og starf með hestunum.

 

Nemendur fá viðurkenningarskjal með mynd af sér og hestinum sínum í lok námskeiðs.

 

Hvert námskeið stendur yfir í eina viku og eru námskeiðin því ýmist 4-5 dagar (frí 17 júní og annan í Hvítasunnu.)

 

Svo bjóðum við einnig upp á Hestafjör – viku námskeið fyrir 11-16 ára

 

Lögð verður áhersla á að fara með nemendur í langa og skemmtilega útreiðatúra um svæðið. Getuskipt verður innan hópsins svo að allir geti farið yfir á þeim hraða sem þeir ráða við og líður vel á, byrjendur fara rólega yfir og auka smám saman hraðan eins og hver og einn ræður við.  Miðað er við að reyndari hópurinn nái að taka reiðtúra m.a. upp að Helgafelli og ríði allar gangtegundir nema skeið.

 

Skráning fer fram í gegnum Sportabler hér: Ishestar Reiðskóli Íshesta | Námskeið | Abler

 

Athugið að skilyrði er að börn hafi klárað fyrsta bekk í grunnskóla.

 

Innifalið: Þægir og góðir reiðhestar, öryggishjálmur og reiðtygi.