Hestur í fóstur reiðnámskeið

Hestur í fóstur

Hestur í fóstur reiðnámskeið eru upplögð fyrir börn sem hafa áhuga á hestum en hafa ekki hest né aðstöðu til að fara á hestbak. Að taka hest í fóstur getur verið góður undirbúningur ef maður hefur áhuga á að skella sér í hestamennskuna.

 

Á námskeiðinu fá börnin úthlutaða hesta sem þau sjá um eins og sinn eigin. Börnin læra að hirða um hestana og fara í útreiðartúra. Þau munu læra að kemba, leggja á og ríða út auk þess sem þau taka þátt í almennri umhirðu hestanna, t.d. setja sag í stíur, hreinsa gerði og gefa.

 

Þetta er liður í því að kynna fyrir börnunum hvað felst í því að eiga hest. Þátttakendur fá góða leiðsögn og þeim verður leiðbeint af þaulreyndum starfsmönnum okkar, fá góða innsýn inn í heim hestamennskunnar og öðlast mikilvægan skilning á því að hestamennska er ekki bara fólgin í því að hoppa í hnakkinn og ríða út.

 

Námskeiðið stendur yfir í 12 vikur og byrjar fyrsta námskeiðið ársins 2023 10. janúar og síðasta námskeiðinu lýkur 2. apríl.

Skráning fer fram á Sportabler

Frá 65.000 kr.

    Name :


    Email :


    Message :


    7-8 ára, fædd 2013-2014

     

    LAUGARDAGAR KL. 9:00
    Byrjendanámskeið – Stubbar

     

    Laugardagar eru fyrir þá sem eru að byrja og hafa enga eða litla reynslu af hestamennsku. Börnin læra að hirða um hestana og læra að umgangast þá af öryggi.

     

    Námskeiðið er á kr. 38.000,-

    9-11 ára, fædd 2010-2012

     

    SUNNUDAGAR KL. 12:30

    Byrjendur

     

    Byrjenda og rólegheitanámskeið eru upplögð fyrir börn sem hafa áhuga á hestum en hafa ekki hest né aðstöðu til að fara á hestbak. Að taka hest í fóstur getur verið góður undirbúningur ef maður hefur áhuga á að skella sér í hestamennskuna.

     

    Námskeiðið er á kr. 65.000,-

    12-16 ára, fædd 2006-2009

     

    SUNNUDAGAR KL. 10:00
    Framhald I eldra

     

    Þátttakendur fá góða leiðsögn og þeim verður leiðbeint af þaulreyndum starfsmönnum okkar, fá góða innsýn inn í heim hestamennskunnar og öðlast mikilvægan skilning á því að hestamennska er ekki bara fólgin í því að hoppa í hnakkinn og ríða út. Fyrir nemendur sem eru óhræddir vð hesta og tilbúnir að ríða á feti, brokki og tölti.

     

    Námskeiðið er á kr. 65.000,-

    SUNNUDAGAR KL. 9:00
    Framhaldsnámskeið – Stubbar

     

    Framhaldsnámskeið er fyrir 7-8 ára börn sem hafa lokið Hestur í fóstur fyrir byrjendur 7-8 ára eða hafa verið mikið í kringum hesta og kunna að umgangast þá. Börnin læra að hirða um hestana að mestu, þau kemba, leggja á og fara á hestbak, mest inni í gerði eða reiðhöll og af og til í stutta reiðtúra. Þau taka þátt í almennri umhirðu hestanna, t.d. setja sag í stíur, hreinsa gerði og gefa. Þetta er liður í því að kynna fyrir börnunum hvað felst í því að eiga hest.

     

    Þetta námskeið er fyrir þá sem hafa farið á reiðnámskeið áður eða verið í kringum hesta og eru óhræddir í umgengni við hross.

     

    Námskeiðið er á kr. 38.000,-

    LAUGARDAGAR KL. 12:30
    Framhald I yngra

     

    Þessi námskeið eru upplögð fyrir börn sem hafa áhuga á hestum en hafa ekki hest né aðstöðu til að fara á hestbak. Að taka hest í fóstur getur verið góður undirbúningur ef maður hefur áhuga á að skella sér í hestamennskuna. Fyrir nemendur sem hafa lokið að minnsta kosti einu reiðnámskeiði. Nemendur þurfa að vera óhræddir við hesta og tilbúnir að ríða hraðar en fet.

     

    Námskeiðið er á kr. 65.000,-

    LAUGARDAGAR KL. 10:00
    Framhald 2 yngra

     

     

    Framhald II yngra

    Framhald II er fyrir nemendur sem hafa lokið a.m.k einu hestur í fóstur námskeiði hjá Íshestum. Nemendur þurfa að vera sjálfbjarga með að festa múl og leggja hnakk á hestinn sinn og geta setið allar gangtegundir nema skeið. Nemendur þurfa að vera óhræddir og öruggir í allri umgengni við hross. Nemendur þurfa að vera sjálfbjarga með að festa múl og leggja hnakk á hestinn sinn og geta setið allar gangtegundir nema skeið. Þurfa einnig að vera óhræddir og öruggir í allri umgengni við hesta.

     

    Námskeiðið er á kr. 65.000,-

    SUNNUDAGAR KL. 15:00
    Reiðklúbbur – Hestur í fóstur

     

    Námskeið fyrir þá sem hafa mikla reynslu af hestamennsku og eru öruggir og óhræddir í umgengni við hross. Nemendur þurfa að vera sjálfbjarga með að leggja á sjálfir þ.e. beisla, festa múl og leggja hnakk á hestinn sinn og vanir að ríða allar gangtegundir nema skeið. Nemendur fá úthlutaðan hest sem þau hugsa um eins og sinn eigin á meðan á námskeiðinu stendur ásamt því að læra að vinna dagleg verk í hesthúsi.

     

    Farið verður í verklega kennslu ásamt því að fara í lengri og styttri hópreiðar um svæðið. Þeir nemendur sem hafa næga reynslu að mati kennara munu fá tækifæri til að ríða út einir eða með öðrum nemendum án leiðbeinanda og upplifa þannig frelsið sem fylgir hestamennskunni og læra þannig að vera sjálfstæðari í hestamennskunni, alltaf verður þó boðið upp á ferðir með kennara fyrir þá sem það þurfa eða kjósa. Áfram eru dagleg verk í hesthúsi unnin af nemendum sem liður í því að kynna fyrir þeim allt það sem fylgir því að eiga sinn eigin hest.

     

    Námskeiðið er á kr. 65.000,-

    ÞRIÐJU- & FIMMTUDAGAR KL. 16:00
    Stjörnuklúbbur

     

    Námskeið fyrir þá sem hafa mjög mikla reynslu af hestamennsku og hafa  verið í Reiðklúbb hjá Íshestum. Nemendur þurfa að vera mjög öruggir og óhræddir í umgengni við hross, sjálfbjarga með að leggja á sjálfir þ.e. beisla, festa múl og leggja hnakk á hestinn sinn og vanir að ríða allar gangtegundir nema skeið. Nemendur fara í útreiðartúra í öllum veðrum og vindum og fá að prófa mismunandi hesta til að auka reynslu til útreiða.

    Nemendur munu fá tækifæri til að ríða út einir eða með öðrum nemendum án leiðbeinanda og upplifa þannig frelsið sem fylgir hestamennskunni og læra þannig að vera sjálfstæðari í hestamennskunni. Áfram eru þó dagleg verk í hesthúsi unnin af nemendum sem er liður í því að kynna fyrir þeim allt það sem fylgir því að eiga sinn eigin hest.

     

    Námskeiðið er á kr. 110.000,-

    • Kennt verður 1 sinni í viku, 2 klukkustundir í senn í 12 vikur
    • Hvert tími er 120 mín í senn
    • Muna að mæta klædd eftir veðri og í góðum skóm

    Á námskeiðinu fá börnin:

    • Hest og reiðtygi
    • Hjálm
    • Öryggisvesti