Read More
Íshestar á Ingólfstorgi 19 mars
Í tilefni af Hestadögum í Reykjavík sem verða 28. Mars – 2.apríl verðum við hjá Íshestum með kynningu á starfseminni og Hestadögum í Reykjavík , laugardaginn 19. mars á Ingólfstorgi milli
14:00 og 15:00.
Glaumur, Sunna og Frami verða á svæðinu og bjóða börnum á bak sér. Einnig vonast Sunna eftir dekri frá börnum sem vilja prófa að kemba hestum og gera þá fína.
Blöðrur, límmiðar og fleira!
Hlökkum til að sjá sem flesta.