Read More
Hestur í fóstur byrjar á laugardaginn!
Hið sívinsæla námskeið Hestur í fóstur byrjar n.k. laugardag 8. janúar. Enn eru nokkur pláss laus á byrjendanámskeið en þegar er orðið fullt á framhaldsnámskeið. Tímarnir eru frá kl. 12-14:00 hvern laugardag til 26. mars.
Þetta námskeið er kjörið fyrir þau börn (8-16 ára) sem dreymir um að stunda hestamennsku en eiga ekki hest. Börnin fá góða innsýn í hestamennskuna og öðlast skilning á því að
hestamennska felst ekki einungis í því að hoppa í hnakkinn og ríða út! Á
námskeiðinu er boðið upp á fasta tíma fyrir alla sem vilja kynnast eða
halda við reiðmennskunni og hjálpa til við hirðingu hrossanna.
Rétt er
að taka fram að hér er ekki um að ræða reiðkennslu undir stjórn
menntaðs reiðkennara. Þátttakendur fá að sjálfsögðu góða leiðsögn og
þaulreynt starfsfólk okkar fylgist með þeim.
Gott er að hafa samband fljótt (s: 555-7000, eða
netfang: info@ishestar.is) því námskeiðin eru fljót að fyllast.
Verð fyrir 12 vikna námskeið er 37.000.
Athugið að ekki er víst að
farið sé á hestbak í hvert skipti þó að yfirleitt sé reynt að fara í
reiðtúr. Við tökum tillit til veðurs í þessu samhengi og einnig bryddum
við stundum upp á annarri dagskrá (t.d. fáum heimsókn tamningamanns,
dýralæknis eða járningamanns svo eitthvað sé nefnt)
Á námskeiðunum þarf m.a. að: Kemba hestunum
Sópa gólfið
Og svo ríða út!